TEIKNINGAR

Skopteikningarnar urðu til á mörgum árum og atburðirnir eru ekki bundnir við ákveðinn tíma. Teikningarnar eru vandlega skissaðar skyndimyndir og persónurnar eiga leiksviðið. Myndirnar endurspegla ákveðnar aðstæður og lýsa einstökum atvikum - oft sem skálduðum hugmyndum, en einnig sem bláköldum staðreyndum. Atriðin á sviði hversdagslífsins eru hér einfaldlega „skjalfest“ á opinskáan og jafnvel á óforskammaðan hátt.

Smá úrval úr safni af yfir 200 skopteikningum

Teikningar: Copyright © Salbörg Hotz